Margvíslegar tryggingar geta verið teknar fyrir húsaleigu og á þessari síðu er að finna upplýsingar um algengustu formin.
Í bankatryggingu felst að viðskiptabanki leigjanda ábyrgist greiðslur fyrir leiguna. Almennt þarf leigjandi því að leggja féð á reikning á eigin nafni sem er læstur þar til leigutíma er lokið. En einnig þekkist það í sumum bönkum að bankinn ábyrgist aðila með trausta greiðslusögu gegn þóknun án þess að féð sé lagt á bók.
Fyrir nánari upplýsingar um bankatryggingu hafið samband við ykkar viðskiptabanka.
Víxill er einskonar skuldabréf á milli tveggja aðila og í flestum tilfellum gerir leigusali kröfu um ábeking ( ábyrgðarmann ) á víxilinn sem leigusali getur þá gengið að standi leigjandi ekki í skilum.
Í sumum tilfellum greiðir leigjandi fé inn á bók leigusala sem tryggingu fyrir greiðslu. Greiðist féð þá til baka til leigjanda að samningstíma loknum ef leigjandi hefur staðið skil á leigugjöldum og engar skemmdir eru á húsnæði.
Leigjandi greiður leigusala fyrirfram ákveðin fjölda leigugreiðslna. Við lok samningstíma hættir leigjandi þá að greiða leigu sem nemur þeim tíma er greitt var fram í tíman fyrir.